Árni Tómas Ragnarsson, gigtarlæknir hjá Domus Medica, vandar Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra ekki kveðjurnar í grein sem hann skrifar í Morgunblaðið í dag.
Sakar Árni Svandísi um að vilja sérfræðilæknisþjónustuna feiga og vilja helst ekki niðurgreiða hana nema að takmörkuðu leyti.
„Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur verið iðin við kolann við að kynna afrek sín og skoðanir á heilbrigðismálum í pistlum í Morgunblaðinu,“ segir Árni og rifjar upp grein sem Svandís skrifaði þann 6. mars síðastliðinn.
„Hún nefnir sérstaklega það markmið að dregið verði úr greiðsluþátttöku sjúklinga fyrir heilbrigðisþjónustu, sem hún segir hafa lækkað í heild á undanförnum árum. En eins og venjulega þegar Svandís tjáir sig, þá tjáir hún sig ekki heldur núna í pistli sínum um starfsemi sjálfstætt starfandi sérfræðilækna, sem er þó ein af meginstoðum heilbrigðiskerfisins.“
Árni segir að Svandís hafi raunar áður lýst frati á starfsemi sérfræðilækna eins og hennar nánasti aðstoðarmaður, Birgir Jakobsson, fyrrverandi landlæknir.
„Ástæðulaust er að elta ólar við nánast hatursfulla afstöðu þeirra tveggja í garð sérfræðilæknanna. Þau hafa oft rætt þetta áður og rök þeirra hrakin. Hins vegar er ekki hægt að láta því ómótmælt að þing og ríkisstjórn beittu sér fyrir því fyrir nokkrum árum að gjöld fyrir komur til sérfræðilækna hækkuðu mikið á meðan t.d. lág gjöld vegna komu til heilsugæslulækna voru lækkuð enn frekar, þ.e. meira niðurgreidd af hinu opinbera, já, 10-20 sinnum meira en gjöld til sérfræðilæknanna.“
Árni segir að þetta hafi gert það að verkum að mikill fjöldi Íslendinga þurfti að greiða miklu meira fyrir heilbrigðisþjónustu sína, það er að segja þeir sem vilja eða þurfa að njóta þjónustu sérfræðilækna.
„Þessi breyting var bæði aðför að sérfræðilæknunum og að skjólstæðingum þeirra, en sú aðför tókst ekki, sérfræðilæknisþjónustan heldur áfram að blómstra þótt Svandís vilji hana feiga og vilji helst ekki niðurgreiða hana nema að takmörkuðu leyti. Orð hennar og heilindi um að dregið verði úr greiðsluþátttöku sjúklinga verða að skoðast í því ljósi.“