Árni Johnsen ákveðinn: Þetta mun gerast innan 25 ára

Árni Johnsen, fyrrverandi þingmaður, kveðst þess fullviss að ekki muni líða 25 ár þar til fyrsti bíllinn ekur í gegnum jarðgöng til Vestmannaeyja. Þetta segir Árni í viðtali við Morgunblaðið í dag.

Eins og greint var frá fyrir skemmstu var samþykkt tillaga í bæjarstjórn Vestmannaeyja um að kanna fýsileika á gerð jarðganga milli Eyja og lands.

Umræða um jarðgöng er ekki ný af nálinni en Árni var mikill talsmaður þess að grafa göng á sínum tíma. Hann fagnar því að hugmyndin sé komin aftur í umræðuna og vonar að hún komist af hugmyndastigi og til framkvæmda.

„Ég hef aldrei verið í vafa um að göng milli Eyja og lands séu raunhæfur möguleiki. Það hefur lengi legið fyrir að þetta er hægt,“ segir Árni en bætir þó við að göng muni kosta um 70 milljarða króna.

„Það er ekki svo mikið þegar horft er á árlegan kostnað við að halda uppi samgöngum á sjó milli Eyja og lands. Þetta er bara bisness,“ segir hann í Morgunblaðið og kveðst fullviss um eitt.

„Það munu ekki líða önnur 25 ár áður en fyrsti bíllinn fer í gegnum göngin. Kannski tíu ár. Það er alveg raunhæft en þá þarf að vinna hratt og ákveðið og beita þeim þrýstingi sem þarf.“