Árni Hall­dórs­son er látinn

Árni Hall­dórs­son, út­gerðar­maður og skip­stjóri á Eski­firði, er látinn. Árni fæddist þann 3. októ­ber 1933 og var því á 87. aldurs­ári þegar hann lést í kjöl­far skamm­vinnra veikinda. Greint er frá and­láti hans í Morgun­blaðinu í dag.

Árni lauk skip­stjórnar­námi árið 1956 og var skip­stjóri á fjöl­mörgum skipum Hrað­frysti­húss Eski­fjarðar. Síðar stofnaði hann fyrir­tækið Frið­þjóf hf. á­samt eigin­konu sinni, Ragn­hildi Kristjáns­dóttur, og vinum þeirra hjóna. Hann var skip­stjóri á skipum fé­lagsins allt fram á tíunda ára­tug liðinnar aldar að hann fór til starfa í landi.

Árni sat í bæjar­stjórn Eski­fjarðar fyrir Sjálf­stæðis­flokkinn og gegndi trúnaðar­störfum í þágu sjó­manna.

Árni og Ragn­hildur eigin­kona hans, sem lést síðla árs 2018, eignuðust sex börn og eru af­kom­endur þeirra hjóna 30 talsins.