Arnar Þór Jónsson, héraðsdómari og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, skorar á flokkinn að beita sér gegn þeim sóttvarnaráðstöfunum sem í gildi eru. Þetta segir Arnar í grein á vef Vísis.
„Engin brýn nauðsyn krefst nú opinberra sóttvarnaráðstafana. Áframhaldandi og nýjar frelsisskerðandi aðgerðir stjórnvalda jafngilda nú lögleysu. Sjálfstæðisflokknum ber að rjúfa þetta ástand nú þegar,“ segir hann í grein sinni og bætir við að af öðrum kosti sé höggvið á lýðræðislegar rætur flokksins og trúverðugleika fórnað.
„Í ljósi alls framanritaðs og til að draga úr líkum á síðari endurtekningum hef ég lagt til að Sjálfstæðismenn standi fyrir kynningar-, funda- og fræðsluherferð um grundvallaratriði lýðræðislegs stjórnarfar og kalli almenning til virkari þátttöku í borgaralegu samfélagi. Geti ég orðið að liði í því sambandi skal ég með gleði ferðast hvert á land sem er,“ segir hann meðal annars.
Arnar Þór hefur látið sig sóttvarnaráðstafanir varða að undanförnu og segir hann að á undanförnum tveimur árum hafi orðið ískyggileg umbreyting á stjórnarfari landsins. Þrengt hafi verið að ferðafrelsi, fundafrelsi, tjáningarfrelsi og yfirráðum yfir eigin líkama svo eitthvað sé nefnt.
„Eins og hendi væri veifað hafa völd og áhrif verið afhent sérfræðingum, sem tala máli „vísindanna“ og virðast gegna einhvers konar presthlutverki gagnvart þeim sem segjast „trúa á vísindin“. Kennivaldið er slíkt að kjörnir fulltrúar telja sér vænlegast að hlýða og fylgja fyrirmælum sérfræðinganna,“ segir Arnar meðal annars.
Hann færir svo rök fyrir því að ráðgjöf sérfræðinga á tímum faraldursins hafi reynst alvarlega gölluð
og mögulega valdið tjóni umfram þann ávinning sem henni var ætlað að skila.
„Frammi fyrir þessu er brýnt að staldra við og viðurkenna að þetta stjórnarfar er í grunninn ólýðræðislegt, brýtur gegn stjórnskipun Íslands og yfirstígur mörk alls meðalhófs. Kjósendur hafa ekki samþykkt stjórnarhætti sem grundvallast á reglum sem settar eru án lýðræðislegrar umræðu og framkalla ábyrgðarlausa og vélræna stjórn landsmála,“ segir Arnar og bætir við að í framkvæmd hafi Alþingi verið gert áhrifalaust.
Nýtt stjórnarfar hafi í reynd verið innleitt þegjandi og hljóðalaust, án þess að fjölmiðlar, fræðimenn, lögfræðingar eða aðrir hafi veitt viðeigandi viðnám.
„Í stað þingræðis búum við nú við sérfræðingaræði. Í stað laga er stjórnað með fyrirmælum. Eldri viðmið um temprað ríkisvald hafa vikið fyrir kennivaldi sem ekkert virðist mega tempra. Sóttvarnalög hafa verið notuð til yfirtrompa stjórnarskrá. Rörsýn á eitt svið hefur leyst heildarsýn af hólmi. Stjórnmálin hafa verið aftengd jafnvægisstillingar-hlutverki sínu. Áherslan hefur færst frá almennum réttindum yfir á sérréttindi. Stjórnskipunarhefðum hefur verið ýtt til hliðar með vísan til neyðarástands sem nú er ekki sjáanlegt. Ný valdastétt er að stíga fram, sem virðist líta svo á að hlutverk þeirra sé að drottna yfir almenningi, en ekki að þjóna almenningi.“
Grein Arnars má lesa í heild sinni hér.