Arnar Þór Jónsson, fyrrverandi héraðsdómari, er sestur á Alþingi í fyrsta sinn.
Arnar Þór er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi en hann var kallaður inn í morgun eftir að þingflokksformaður flokksins, Óli Björn Kárason greindist með Covid-19 í gær og þurfti að fara í einangrun.
Arnar Þór hefur vakið töluverða athygli í þjóðfélaginu að undanförnu vegna andstöðu og harðrar gagnrýni á sóttvarnayfirvöld. Hefur hann meðal annars kallað eftir því að Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir segi af sér.
Arnar Þór hefur lýst miklum áhyggjum af auknu valdboði stjórnvalda vegna heimsfaraldursins og jafnvel lýst því viðhorfi að faraldurinn sé notaður til að færa stjórnarfarið í átt að alræði. Heimildir Hringbrautar herma að Arnar Þór hafi gengið grímulaus í þingsal við upphaf þingfundar nú síðdegis en fjöldi þingmanna og starfsmanna þingsins hafa greinst með veiruna undanfarna daga.
Mikil áhersla hefur því verið lögð á sóttvarnir í þinginu, enda brýnt að það takist að ljúka fjárlagavinnunni og tengdum málum fyrir áramótin.
Herma heimildir Hringbrautar að þingflokksformaður Framsóknarflokksins, Ingibjörg Isaksen, hafi farið til þess að minna dómarann fyrrverandi á grímuskyldu í þingsalnum og mun hann hafa orðið við tilmælum um að bera grímu.