„Smáríki eru peð á hinu fjölþjóðlega taflborði ESB. Í stað þess að fullvalda ríki setji sín eigin lög að undangenginni gagnrýninni umræðu á löggjafarþingi viðkomandi þjóðar er í Brussel látlaust unnið að styrkingu yfirþjóðlegs valds. Í stað lýðræðislegs réttarríkis reiðir hið yfirþjóðlega vald sig á ólýðræðislega lögstjórn. Hinn rauði þráður er andstaða við raunverulegt staðbundið lýðræði, þar sem borgararnir eiga kost á að tempra meðferð ríkisvaldsins.“
Þetta skrifar Arnar Þór Jónsson, héraðsdómari og frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, í Fréttablaðið í dag í skoðanagrein með yfirskriftinni „Höldum vöku og sýn“.
Þar fjallar dómarinn um grein Þorsteins Pálssonar í Fréttablaðinu, „Hræðsluáróður opnar ekki ný tækifæri“ sem birtist 15. júlí og stuðning fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins við aðild að Evrópusambandinu.
„Í nýrri grein Þorsteins 15. júlí er sami tónn sleginn strax í upphafi þegar hann segir að oft sé „árangursríkara í pólitík að hræða fólk frá stefnu andstæðinganna en að fá það með rökum til að aðhyllast eigin málstað,“ skrifar Arnar.
Hugnast lítt aðild að ESB
„Það er illa komið fyrir fyrrverandi formanni og varaformanni Sjálfstæðisflokksins þegar þau hafa gengið í lið með þeim sem vilja grafa undan sjálfstæði þjóðarinnar með staðlausum stöfum og hræðsluáróðri; með þeim sem vilja að Íslendingar gefi frá sér til útlanda aftur stjórn eigin mála sem þeir svo lengi börðust fyrir að fá inn í landið,“ segir hann enn fremur.
„Þegar valdhafar missa trú á getu þjóða til að marka eigin braut fellur lýðræðis- og frjálslyndisgríman. Alræðisógnin verður þá raunveruleg. Leiðin til ánauðar hefur fyrir löngu verið kortlögð.“