Margrét bregst við eftir nýjustu vendingar: „Þetta land er miklu rotnara og ógeðslegra en mig grunaði“

Arnar Þór Jónsson, lögmaður og verjandi, Margrétar Friðriksdóttur, ritstjóra Fréttarinnar, er hættur sem lögmaður hennar.

Fréttablaðið greinir frá þessu á vef sínum og hefur eftir heimildum sínum. Ástæðan er sögð vera Facebook-færsla Margrétar í gærkvöldi þar sem hún lét bókstaflega allt flakka og fór ófögrum orðum um dómarann í málinu, Barböru Björnsdóttur.

Margrét var í gær dæmd í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líflátshótanir í garð Semu Erlu Serdar, formanns Solaris, á ágústkvöldi árið 2018.

„Ég vil segja það að fólk á auðvitað ekki að reka mál sín annars staðar en bara fyrir dómi og ef það kýs að gera það þá er það ekki á mína ábyrgð eða á ábyrgð lögmanna,“ segir Arnar Þór í viðtali við Fréttablaðið.

„Ef fólk kýs að reyna að reka mál annars staðar þá má líta svo á að þar með sé búið að rjúfa trúnaðarsamband, það séu brostnar forsendur fyrir því að lögmaður sinni þessu hlutverki áfram.“

Margrét greindi frá því í hádeginu að dómarinn í málinu hefði haft samband við lögmann hennar og beðið um að færslan hennar í gærkvöldi yrði tekin út. Margrét virðist ekki ætla að verða við beiðninni. „Ég skulda þessari […] konu ekki neitt, og hún má skammast sín,“ segir hún.

Hún brást svo við frétt Fréttablaðsins, um að Arnar Þór hefði sagt sig frá málinu, nú á öðrum tímanum í dag með annarri færslu. Þar sagði hún meðal annars:

„Langar að taka hér fram að Arnar Þór Jónsson tengist innleggi mínu í gær á engann hátt, hann sagði sig frá málinu vegna færslunar, en að mínu viti er kona sem setur svartan blett á dómstóla og dæmir mig í fangelsi, þrátt fyrir að vitni hafi staðfest að Sema hafi átt upptökin á riflildinu, óheiðarleg og ómerkileg svo vægt til orða tekið.“

Margrét segir síðan í færslunni að ákæruvaldið og Sema Erla hafi fallist í faðma eftir að búið var að dæma í málinu í gær. „Og ég mætti þeim í tröppunum í þinghúsinu því ég var aðeins of sein en þar voru þær að hlæja saman og segja gott á mig.“

Hún er allt annað en sátt við dóminn: „Þetta land er miklu rotnara og ógeðslegra en mig grunaði.“