Arnar Þór Jónsson, lögmaður og lýðræðissinni eins og hann titlar sig, segir í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag að frá árinu 2020 hafi átt sér stað raunverulegt lýðræðishrun á Vesturlöndum.
Tilefni greinar hans er dagskrá Lagadaga, málþings Lögmannafélags Íslands, Dómarafélags Íslands og Lögfræðingafélags Íslands en hann er afar gagnrýninn á það að þar eigi ekki að ræða „augljósa hnignun réttarríkisins í kórónuveirufárinu“.
Arnar var og hefur verið mjög gagnrýninn á aðgerðir og ákvarðanir stjórnvalda frá því að faraldurinn hófst og segir í grein sinni að með því að hundsa það og fjalla ekki um það á Lagadeginum „kalli „lögfræðingasamfélagið“ yfir sig áfellisdóm og tortryggni“.
„Skipulega hefur verið alið á ótta, vísindaleg rökræða bæld niður, pólitísk rökræða vængstýfð og heilbrigðar efasemdir úthrópaðar. Ríki sem hingað til hafa kennt sig við lýðræði og frjálslyndi hafa beitt lögregluvaldi til að berja niður lögmæt mótmæli. Í reynd má segja að frá árinu 2020 hafi átt sér stað raunverulegt lýðræðishrun á Vesturlöndum, sem ekki sér enn fyrir endann á. Fjölmiðlar hafa útvarpað áróðri, ýkt hættuna af veirunni og kæft niður umfjöllun um sprautuskaða, í þeim tilgangi að afla stuðnings við sóttvarnaaðgerðir. Aðgerðir þessar grófu undan lýðræðislegu stjórnarfari með því að koma á fámennisstjórn þar sem hlýðni við valdhafa yfirtrompar sjálfræði einstaklingsins. Samfélagsmiðlum hefur verið beitt gegn málfrelsinu með ritskoðun og hugtakið „falsfréttir“ notað um allt sem ekki samræmist viðurkenndum kennisetningum yfirvalda. Lýðræðinu hefur verið kippt úr sambandi með vísan til ýkts hættuástands. Þingræðið var gert óvirkt með vísan til sóttvarna. Borgaraleg réttindi og stjórnarskrárvarið frelsi hafa verið vanvirt í stórum stíl. Ráðherrar hafa afhent allt of mikið vald til sérfræðinga á þröngu sviði. Dómstólar hafa ekki sinnt stjórnarskrármæltu aðhaldshlutverki og endurskoðunarvaldi með viðunandi hætti. Alþingi hefur í reynd verið gert áhrifalaust og hendur þess bundnar á sviðum sem verulegu máli skipta,“ segir Arnar í grein sinni og er gagnrýninn á að það hafi allt verið í nafni þess að „fylgja vísindum“.
Hann skorar á fólk að hafna óttastjórnun og að leyfa sér að efast en greinina lýkur hann svo á skilaboðum til kollega sinna:
„Til kollega minna í „lögfræðingasamfélaginu“ vil ég segja þetta: Það er betra að sjá sannleikann þótt hann sé svartur, en að lifa í blekkingu og þegja.“
Greinina er hægt að lesa í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.