Arnar Þór Jónsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og lögmaður samtakanna Frelsi og ábyrgð, sagði í þættinum Sprengisandií morgun að verið sé að nota Covid-faraldurinn til að færa stjórnarfarið átt að alræði.
„Ég hef velt því fyrir mér hvort þetta Covid-mál sé einhvers konar Trójuhestur sem á að leiða inn nýtt stjórnarfar þar sem lýðræðinu er kippt úr sambandi og við lifum í einhvers konar geðþótta án lýðræðislegrar umræðu. Það er alveg ástæða fyrir því að við kjósum að lifa í lýðræðislegu samfélagi, það til að sem flest sjónarmið komist að,“ sagði hann.
Þá sagði hann að ef taka ætti upp bólusetningaskyldu þá væri verið að feta mjög hættulega braut, slíkt hafi verið gert áður í sögunni:
„Það endaði með því að fulltrúar læknastéttarinnar sem stóðu að þeirri lyfjagjöf lentu margir á bak við lás og slá ef ekki bara í gálganum. Þá þurfa menn að fara mjög varlega segi ég.“
Tómas Guðbjartsson, best þekktur sem Lækna-Tómas, sem var með honum í þættinum sagði að sjálfur væri hann er ekki spenntur fyrir skyldubólusetningu: „Hins vegar er ástandið mjög alvarlegt. Líka með Ómíkron. Fólk hefur dálítið verið að tala þetta niður en þetta er miklu alvarlega en flestir gera sér grein fyrir.“