Arnar segir um­breytinguna aftur­för sem á enga stoð í stjórnar­skrá: „Sofanda­háttur Ís­lendinga mun fara í sögu­bækurnar“

Arnar Þór Jóns­son, vara­þing­maður og lög­maður segir að allir ættu að lesa grein Sig­ríðar Ander­sen í laugar­dags­blaði Moggans.

„Þar fjallar hún um fyrir­hugaðar breytingar á lög­gjöf ESB um flug­ferðir, sem að öllu ó­breyttu munu stór­skaða ís­lenska hags­muni. Sig­ríður undrast rétti­lega hve lítið hefur verið rætt um málið á Al­þingi. Sú þögn er því miður að­eins mynd­birting þess far­þega­hlut­verks og á­hrifa­leysis sem Ís­landi hefur verið valið innan EES. Af­leiðingin er sú að Al­þingi er að breytast í á­hrifa­laust leik­hús, þar sem er­lendar reglur eru sam­þykktar um­ræðu­laust, en em­bættis­menn eru gerðir að ,,lobbíistum". Þetta er um­breyting og aftur­för sem á sér enga stoð í stjórnar­skrá Ís­lands,“ skrifar Arnar í blog­færslu.

„Í fréttum kemur fram að tugir árangurs­lausra funda hafi verið haldnir um þetta mál. Það hefur þótt vera til marks um ein­hvers konar vit­firringu að marg­í­treka sömu at­höfn og í­mynda sér að niður­staðan verði önnur,“ bætir hann við.

„Ef Ís­lendingar stæðu vörð um lýð­ræðis­legt stjórnar­far gætu þeir séð og viður­kennt að það er með öllu ó­á­sættan­legt að við fáum lögin send hingað í formi til­skipana sem við höfum ekkert um að segja, hvorki til að breyta efni þeirra né til að hafna þeim. Til að bæta gráu ofan á svart svarar „lög­gjafinn“ (lesist: ESB) ekki til neinnar á­byrgðar gagn­vart okkur sem mót­tak­endum þessara sömu reglna. Hlut­verk okkar er að­eins eitt í þessu sam­hengi: Að hlýða.“

„Hvað heitir þetta stjórnar­fyrir­komu­lag á manna­máli annað en of­ríki? Hvers vegna ættu Ís­lendingar að lúta lögum sem þannig verða til og er beint til okkar með þeim hætti sem hér var lýst?“ spyr Arnar að lokum.