Arnar segir söluna hjá Sante ganga vel fyrir helgina: „Við hvetj­um ekki til á­feng­is­neyslu eins og hið op­in­bera“

Arn­ar Sig­urðs­son, eig­andi vín­versl­un­ar­inn­ar Sante ehf. og franska fé­lags­ins Santewines SAS, segir söluna hjá fé­laginu ganga vel fyrir Verslunar­manna­helgina.

„Við hvetj­um ekki til á­feng­is­neyslu eins og hið op­in­bera. Við erum auð­vitað ekki að hvetja fólk til að kaup vín, við erum með svo­kallaða hjarð­heilsu­­stefnu og hvetj­um fólk ekk­ert til að kaupa meira en það þarf,“ segir Arnar í sam­tali viðmbl.is.

Arnar segist ekki hafa þurft að hvetja fólk til að mæta snemma og versla. Mikil aukning hefur verið í sölu síðustu daga hjá Sante.

„Það fóru bara all­ir á netið að eig­in ósk, á eig­in tíma. Menn mættu bara grímu­­laust í sína tölvu og sinn síma,“ seg­ir Arn­ar og bæt­ir við að mesta aukn­ing­in í sölu fyr­ir helg­ina hafi verið á bjórn­um Guin­nes.

Hann seg­ir á­stæðu skyndi­­­legra vin­­sælda Guin­nes vera að bjór­inn kosti um 130 krón­um minna en í Vín­búðinni.