Arnar ráðinn lands­liðs­þjálfari - Eiður Smári verður aðstoðarþjálfari

KSÍ hefur ráðið Arnar Þór Viðars­son sem nýjan þjálfara A lands­liðs karla til næstu tveggja ára og hefur hann þegar hafið störf. Þetta kom fram í til­kynningu sem KSÍ sendi frá sér rétt í þessu.

Arnar er fæddur 1978, er með UEFA Pro þjálfara­réttindi frá belgíska knatt­spyrnu­sam­bandinu og er knatt­spyrnu­á­huga­fólki að góðu kunnur, en hann á að baki 52 A-lands­leiki, auk fjöl­margra leikja fyrir yngri lands­lið Ís­lands. Hann lék sem at­vinnu­maður í Belgíu og Hollandi frá árinu 1997 til 2014 og starfaði frá því ári sem þjálfari hjá Cerc­le Brügge og Lokeren í Belgíu.

Í janúar 2019 var Arnar ráðinn þjálfari U21 lands­liðs karla og lætur hann nú af því starfi, en mun starfa á­fram tíma­bundið sem yfir­maður knatt­spyrnu­sviðs hjá KSÍ, eins og hann hefur gert síðan í apríl 2019, þar til ráðið verður í þá stöðu.

Að­stoðar­þjálfari Arnars verður Eiður Smári Guð­john­sen, en þeir Arnar og Eiður störfuðu einnig saman með U21 lands­liðið. Eiður Smári, sem er fæddur 1978 og hefur lokið UEFA B þjálfara­gráðu, lék með 15 fé­lags­liðum í 9 löndum frá árinu 1994 til 2016. Hann hefur leikið 88 A-lands­leiki og skorað í þeim 26 mörk, auk fjöl­margra leikja og marka fyrir yngri lands­lið Ís­lands.

U21 lands­lið karla leikur í úr­slita­keppni EM á árinu 2021 og mun KSÍ til­kynna um ráðningu nýs þjálfara­t­eymis liðsins innan skamms.

Fyrstu leikir A lands­liðs karla undir stjórn Arnars Þórs og Eiðs verða leikir í undan­keppni HM 2022 – þrír úti­leikir í mars 2021. Þá hafa verið stað­festir tveir vin­áttu­leikir í júní – úti­leikir gegn Fær­eyjum og Pól­landi.