Arnar Hauksson kvensjúkdómalæknir segir að vinsæl iðja meðal landsmanna valdi ófrjósemi. Arnar ræddi um ófrjósemi í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.
Var hann spurður út í hvort það að vera með fartölvu í fanginu minnki frjósemi, er það hitinn frá tölvunni sem er skaðvaldurinn.
„Það er staðreynd með karla. Hiti, gufubað, sauna, heitir pottar og steranotkun hefur öðruvísi áhrif á heiladingul,“ sagði hann.
„Það dugir ekki með sama skapi á konur.“
Arnar sagði að þessi iðja væri ekki bara vinsæl á Íslandi heldur í öllum heiminum. „Við erum öll á kafi í lúxuslifnaði. Við erum hætt að lifa til þess að framfleyta deginum og vera hamingjusöm með fjölskyldunni. Við erum að hamast við að vera í neysluþjóðfélagi.“