Arnar Grant opnar sig um mál Vítalíu: „Ég stend bara með sannleikanum“

Arnar Grant hefur nú tjáð sig um mál Vítalíu Lazarevu, sem sagði í hlaðvarpsþættinum Eigin konur frá meintu ofbeldi þeirra Þórðs Más Jóhannessonar, Ara Edwalds og Hreggviðs Jónssonar, sem í kjölfarið stigu til hliðar í stjórnum nokkurra stærstu fyrirtækja landsins.

Vísir fjallar um málið.

Umrætt atvik átti sér stað í sumarbústaðarferð og þar var Arnar viðstaddur. Hann segist hafa verið vitni að því sem átti sér stað.

„Ég er vitni í málinu. Ég sá hvað gerðist og þessar lýsingar hennar, sem hún hefur komið með, þær eru ekki fjarri lagi,“

Þá var Arnar spurður hvort hann myndi bera vitni í málinu. „Ég get ekkert annað og stend bara með sannleikanum.“

Arnar segir að hann sé tilbúinn að vera vitni í málinu fari það fyrir dóm. Þó segist hann ekki vera búin að að gefa skýrslu í málinu. Það sama má segja um Vítalíu. En Ekki er vitað hvort Þórður, Ari og Hreggviður hafi gert það.