Arnar Grant og Kristín setja glæsihýsið á sölu: „Á eftir­sóttum stað með sjávar­út­sýni“

Arn­ar Grant og fyrr­verandi eigin­kona hans, Krist­ín Hrönn Guð­munds­dótt­ir, hafa sett glæsi­hýsi sitt á Arnar­nesi á sölu. Þetta kemur fram í frétt Frétta­blaðsins.

Um er að ræða 232,3 fer­metra ein­býlis­hús með frístandandi 61,2 fer­metra bíl­skúr. Þá kemur fram að eignar­lóðin sjálf sé 1118 fer­metrar „á ró­legum og eftir­sóttum stað með sjávar­út­sýni“.

Húsið er á tveimur hæðum og í því má finna heitan pott, arinn, fata­her­bergi og margt fleira. Hægt er að lesa nánar um eignina á fast­eigna­vef Frétta­blaðsins.

Mbl.is greindi fyrst frá þvíað húsið væri komið á sölu. Þar kemur fram að þau festu kaup á húsinu árið 2011 og hafi þau síðan gert húsið upp. Þá segir jafn­framt að Arnar og Kristín selji nú húsið eftir að þau fóru hvort í sína átt eftir að upp komu um sam­band Arn­ars og Vítalíu Lazareva.