Arnar Eggert: „Búinn að meika það! Kominn á frettin.is!!“

Arnar Eggert Thoroddsen, aðjunkt í félagsfræði og tónlistargagnrýnandi, er hæstánægður með að hafa verið tekinn fyrir á frettin.is sem er á vegum Margrétar Friðriksdóttur.

„Búinn að meika það! Kominn á frettin.is!,“ segir hann sigri hrósandi á Facebook.

Tilefnið er viðtal við hann á RÚV um að málfrelsi dugi skammt þegar rangar upplýsingar um kórónuveirufaraldurinn og bólusetningar eru bornar á borð. Á vef Margrétar segir að Arnar hafi verið að líkja Ívermectin við stíflueyði.

Arnar er mjög sáttur: „Á hlekkvísaranum á Google stendur meira að segja: "Aðjúnkt í félagsfræði líkir Nóbelsverðlaunalyfinu Ívermektín við stíflueyði."

Þetta mun ég aldrei ná að toppa, það er ljóst. Spurning um að sækja um snemmbæran lífeyri?“

Var honum bent á athugasemd hjá Margréti: "Og þetta er það sem við fáum frá háskólasamfélaginu … ekki er framtíðin björt."

Arnar elskar það: „Nákvæmlega. Elska þetta komment!“