Íþróttafréttamaðurinn Arnar Björnsson var í hópi tuttugu starfsmanna sem sagt var upp störfum hjá Sýn í gær. Arnar er einn þekktasti íþróttafréttamaður landsins en hann hóf störf hjá Sýn árið 1997 og hefur fylgt fyrirtækinu í gegnum ýmsar breytingar.
Arnar skrifaði færslu á Facebook í gærkvöldi og virðist hann hvergi banginn þrátt fyrir uppsögn. Hann segist kveðja sáttur.
„Þetta eru skrítnir tímar. Í dag lauk ég störfum hjá Stöð 2. Þar byrjaði ég á vormánuðum 1997 en var rekinn í dag. Ég kveð vinnustað minn sáttur og glaður. Á þessum langa tíma í fjölmiðlum hef ég verið lánsamur,“ segir hann og bætir við að þeir séu orðnir margir sem hafa hlotið sömu örlög og hann.
„Þá sat maður eftir og sá á eftir góðum samverkamönnum. Fyrsta rauða spjaldið á ferlinum fer í reynslubankann hjá manni sem aldrei leiddist í vinnunni. Takk fyrir öll símtölin og keðjurnar. Ég á eftir að sakna vinnufélaganna og fæ vonandi tækifæri til að gera það á persónulegum nótum einhvern tíma síðar. Er ekki tími til kominn að tengja spurði skáldið seint á síðustu öld? Framundan nýir og spennandi tímar.“