Arnar Björnsson kominn yfir í fréttirnar á RÚV

Þeir sem hlustuðu á hádegisfréttir RÚV í hádeginu tóku vafalítið eftir kunnuglegri rödd sem sagði hlustendum frá því að mörg Evrópulönd ætluðu að byrja að bólusetja unglinga síðar í þessum mánuði.

Þar var á ferðinni Arnar Björnsson, sem um langt skeið hefur verið í hópi fremstu íþróttafréttamanna þjóðarinnar, en hann er byrjaður á RÚV eftir langa fjarveru.

Arnar byrjaði á Stöð 2 og tengdum rásum árið 1997 eftir að hafa starfað áður á RÚV og lýsti hann ófáum kappleikjum á ferli sínum, til að mynda leikjum í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta og Meistaradeild Evrópu til dæmis. Nú hefur Arnar vent sínu kvæði í kross og er farinn að segja fréttir á RÚV.

Arnari var sagt upp á Sýn, sem rekur meðal annars Stöð 2, skömmu eftir að COVID-19 faraldurinn gerði vart við sig. Uppsögnin kom Arnari og þeim sem hann þekkja á óvart, eins og fram kom í frétt DV, enda Arnar annálað ljúfmenni og vel liðinn meðal samstarfsfélaga.

Hamingjuóskum hefur rignt yfir Arnar á Facebook-síðu hans og fagna margir því að þessi öflugi fjölmiðlamaður sé genginn til liðs við ríkisfjölmiðilinn. „Frábært, ætlaði varla að trúa þegar èg heyrði röddina. Til hamingju,“ segir til dæmis í einni athugasemd.

Á RÚV mun Arnar hitta fyrir nokkur kunnugleg andlit, þar á meðal dóttur sína Kristjönu Arnarsdóttur. Kristjana hefur gert það gott í íþrótafréttunum þar eins og faðir hennar forðum daga.