Arnaldur segir af sér formennskunni: „Bið ég þeim og öllum konum blessunar“

Arnaldur Bárðarson ætlar að segja af sér formennsku í Prestafélagi Íslands.

„Það geri ég til að lægja þær öldur er risið hafa um formennsku mína og til að hlífa þeim konum sem eru þolendur mála í Hjalla- og Digraneskirkju við frekari sársauka. Bið ég þeim og öllum konum blessunar. “ segir Arnaldur á Facebook, sem ætlar að boða til aukaðalfundar í félaginu þann 10. október næstkomandi, en þar mun hann segja af sér formennskunni.

Þá segist hann hvetja alla karlmenn til að koma vel fram við konur bæði í orði og í verki. Þá minnist hann á heilræðavísu Hallgríms Péturssonar, sem er eftirfarandi:

„Vertu dyggur, trúr og tryggur,

tungu geymdu þína,

við engan styggur né í orðum hryggur,

athuga ræðu mína.“

Arnaldur hafði áður sagst ekki ætla að segja af sér, en hefur nú gert það. Ástæðan eru orð sem hann lét falla í máli Gunnars Sigur­jóns­sonar, en biskup vék á dögunum Gunnari úr starfi og veitti honum skrif­lega á­minningu vegna á­sakana sex kvenna um kyn­ferðis­legt á­reiti, kyn­bundið of­beldi og ein­elti.