Fegurðardrottningin og áhrifavaldurinn Arna Ýr Jónsdóttir segist oft upplifa það að ekki sé tekið mark á henni nema hún sé förðuð og helst búin að klæða sig upp.
Arna Ýr greindi frá þessu á Instagram og vakti Fréttablaðið athygli á málinu.
Arna sagðist upplifa að ekki sé tekið mark á henni þegar hún ætlar til dæmis að skila vörum í verslunum, nema hún sé búin að klæða sig upp og setja á sig farða.
„Ég lendi hryllilega oft í því að það er ekki tekið mark á mér þegar ég er ómáluð eða í jogging-gallanum. Þegar ég er máluð og fínt klædd, jafnvel í hælum finnst mér karlkyns starfsfólk oft stökkva til, til þess að aðstoða mig og segja áberandi hátt, góðan daginn get ég aðstoðað?“ sagði Arna.
Hún sagðist ekki alhæfa að móttökurnar væru þessar í öllum verslunum. Þá bætti hún við að Vignir, unnusti hennar, hafi einnig tekið eftir þessu.