Arna Hrönn Ágústsdóttir var ekki heima þegar dóttir hennar fékk óþægilega heimsókn, að því er virðist óprúttinna aðila.
Fréttablaðið greinir frá málinu en Arna býr í Rimahverfi í Grafarvogi. Arna greinir einnig frá málinu í íbúahópi á Facebook í þeirri viðleitni að vara íbúa við.
„Vildi làta vita af mjög svo óþægilegri heimsókn sem dóttur okkar fékk í gær um kvöldmatarleytið. Við foreldrarnir vorum ekki heima og það koma tvær konur á hvítum smábíl sem banka uppá.
Nafngreina mig og segjast vera að koma að taka myndir. Þær töluðu víst ekki fullkomna íslensku svo stelpan var ekki alveg að skilja allt sem þær sögðu. Önnur þeirra var með stutt ljóst hár i gallajakka en hin með dökkt hár i tagli eða fléttu og i leðurjakka,“ skrifar Arna.