Árna Þórði enn haldið sofandi: „Við ætlum að ná honum í gegnum þetta“

Árna Þórði, syni veðurfréttamannsins og bæjarfulltrúans góðkunna Sigurðar Þ. Ragnarssonar, er enn haldið sofandi í öndunarvél. Vísir greinir frá þessu og ræðir við Sigurð, föður Árna.

Greint var fá málinu milli jóla og nýárs en Sigurður skrifaði færslu á jóladag þar sem hann greindi frá veikindum sonar síns. Hvatti Sigurður vini sína til að biðja fyrir Árna á þessum erfiðu tímum.

„Þetta er fjölkerfa bilun í líffærum þannig að staðan er mjög þung og hún er mjög flókin en það er ekki búið að afskrifa neitt,“ sagði hann við DV um jólin.

Í samtali við Vísi í dag segir Sigurður að líðan Árna sé óbreytt en fjölskyldan heldur í vonina um að hann nái sér á strik aftur.

„Hann er enn í sama ástandi, í lífshættu og allt það en þeir segja doktorarnir að góð von sé ennþá. Einn læknirinn orðaði það svo: við ætlum að ná honum í gegnum þetta. Það var hughreystandi setning þó maður sé meðvitaður um alvarleikann,“ hefur Vísir eftir Sigurði.

Hann segir að Árni hafi verið mjög heilsuhraustur enda aðeins 29 ára þegar hann veiktist. Hann segir að við taki uppbyggingarfasi sem talinn er í mánuðum þegar hann kemst í gegnum þetta.

Nánar er rætt við Sigurð á vef Vísis.