Kona sem dvaldi sem barn á leikskólanum Hörðuvöllum í Hafnarfirði segir ofbeldi sem hún varð fyrir þar hafa fylgt sér fram á fullorðinsár. Arna Ósk Óskarsdóttir segir það að verða fyrir ofbeldi í æsku ekki gott veganesti út í lífið, en hún trúði því lengi að hún ætti ofbeldið skilið, en skilar nú skömminni til þeirra sem hana eiga. Þetta kemur fram í viðtali Fréttablaðsins við Örnu.
Ég man ekki nákvæmlega hvað ég gerði af mér til þess að þær fóru að beita sér svona. Það sem situr mest í mér er þegar þær skömmuðu mig og tóku mig úr að ofan. Síðan settu þær mig í barnastól við matmálstímann á meðan hin börnin sátu á venjulegu borði. Börnin hlógu því þau vissu að þetta var aðferð sem notuð var til að skamma,“ segir Arna Ósk, þegar hún rifjar upp æskuna á köldum degi á kaffihúsi í hjarta Hafnarfjarðar.
„Það var aðallega þetta að þær skyldu taka mig úr að ofan sem situr mest í mér. Ég er tiltölulega nýhætt að vera rosalega vör um mig og spéhrædd,“ segir Arna Ósk einlæg, en hún sagði foreldrum sínum ekki frá ofbeldinu fyrr en málið komst í fjölmiðla nokkrum árum síðar, þegar móðir hennar fór að spyrja.
„Mér datt aldrei til hugar að segja foreldrum mínum hvað hafði skeð í leikskólanum. Ég trúði því auðvitað frá þessum konum sem áttu að vera þarna og vernda mig og ég leit upp til. Ég trúði því að þær væru að gera þetta af því ég átti það skilið,“ segir Arna Ósk og heldur áfram: „Ég trúði því að mamma myndi skamma mig af því þær létu mig trúa að ég væri óþekk.“
Hægt er að lesa viðtalið í heild sinni hér.