„Undanfarna daga hef ég mikið spáð í það hvað hægt sé að gera til þess að fá fólk til þess að taka smitvörnum alvarlega,“ segir Arna Rós Bragadóttir sem starfar sem hjúkrunarnemi á smitsjúkdómadeild Landspítalans.
Arna skrifaði færslu í Facebook-hópinn Kórónuveiran COVID-19 í gærkvöldi sem vakti mikla athygli, enda má segja að Arna þekki sjúkdóminn betur en margir. Arna greindist sjálf með COVID-19 í mars síðastliðnum en sem fyrr segir vinnur hún á smitsjúkdómadeild Landspítalans þar sem einstaklingar með COVID-19 eru meðal skjólstæðinga.
Arna segir að það hafi verið mikið sjokk að greinast, en hún var í einangrun í tvær vikur vegna smitsins. Það var ekki bara sjokk að greinast því hana grunaði ekki að veiran myndi hafa jafn mikil áhrif á hana og raun bar vitni.
„Þegar ég losnaði úr einangrun var ég ekki með neitt þol. Fyrst eftir að ég komst heim til Hvammstanga ætlaði ég að labba 2km hring sem ég er þaulvön að fara. Þegar ég var komin u.þ.b. 100m var ég farin að þreytast, en þegar ég var komin 500m þurfti ég að stoppa og snúa við því ég var alveg að kafna og einnig var mér svo óglatt að ég var við það að kasta upp. Næsta dag gat ég labbað auka 100m. Ég fór út á hverjum degi aðeins lengra bara til þess að ná upp þolinu, þangað til ég var búin að ná því alveg upp. Þess má geta að fyrir COVID var ég í besta formi lífs míns,“ segir Arna í færslunni sem hún veitti Hringbraut leyfi til að segja frá.
Hún segir að í dag sé hún komin með gott gönguþol en enn vanti nokkuð upp á líkamlegan styrk. Þannig verður henni fljótt óglatt við mikla áreynslu.
„Ég verð 23 ára eftir nokkra daga og aldrei bjóst ég við því að enn væri ég að glíma við eftirköst þessa sjúkdóms núna 7 mánuðum eftir að ég greindist. Ég er þó heppin því eftirköstin mín hafa ekki það mikil áhrif á mig að ég geti ekki unnið eða stundað nám. Því miður eru margir sem hafa ekki sloppið jafn vel og ég frá sjúkdómnum,“ segir Arna sem kveðst mjög stolt af því að vinna á smitsjúkdómadeild Landspítalans. Þá er hún full þakklætis yfir því að vinna með því frábæra fólki sem þar starfar og gefur sig alla í að sinna þessum sjúklingahóp.
„Þrátt fyrir að hlífðarfatnaðurinn sé óþægilegur og meiði mann í andlitinu þá fyllist ég þakklætis þegar ég fer í hann af nokkrum ástæðum,“ segir Arna sem telur upp þrjú atriði.
„1. Vegna frétta sem voru í fyrstu bylgjunni um slæmar aðstæður heilbrigðisstarfsfólks í mörgum öðrum löndum.
2. Vegna þess að ég er þakklát fyrir að hafa heilsu til þess að sinna COVID smituðum einstaklingum.
3. Einnig vegna þess að ég man eftir þeirri tilfinningu þegar það kom læknir í hlífðarfatnaði heim til mín þegar ég var veik og gat þar af leiðandi sinnt mér. Þá hafði ég ekki séð manneskju í rúma viku og ég man eftir örygginu sem það veitti mér.“
Arna endaði skrif sín á þessum orðum:
„Virðum sóttvarnir því það vill enginn smitast. Þú veist heldur aldrei hvaða áhrif COVID hefur á þig og þína nánustu.“