Ármann Þorvaldsson er hættur sem forstjóri Kviku banka að eigin ósk. Ármann leitar þó ekki langt yfir skammt og verður aðstoðarforstjóri bankans. Marínó Örn Tryggvason, sem hefur verið aðstoðarforstjóri, tekur við sem forstjóri.
Frá þessu er greint í tilkynningu til Kauphallarinnar. Þar segir að Ármann muni nú einbeita sér að því að byggja upp viðskiptasambönd, þróa viðskiptamöguleika og auka starfsemi Kviku enn frekar í Bretlandi.
Marinó var ráðinn aðstoðarforstjóri Kviku banka árið 2017. Hann starfaði áður hjá Kaupþingi og síðar Arion banka frá árinu 2002.