Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gaf í dag út mánaðarlegt yfirlit fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar) fyrir mars 2023 eru eftirfarandi:
Hlutabréf:
Úrvalsvísitalan (OMXI10) lækkaði um 1,6 prósent í mars og stendur nú í 2.606 stigum. Leiðrétt fyrir arðgreiðslum hækkaði vísitalan hins vegar um 1,2 prósent.
Heildarviðskipti með hlutabréf í febrúar námu 89,8 milljörðum eða 3.902 milljónum á dag. Það er 14 prósenta lækkun frá fyrri mánuði, en í febrúar námu viðskipti með hlutabréf 4.549 milljónum á dag. Milli ára drógust viðskipti saman um 51 prósent (viðskipti í mars 2022 námu 7.957 milljónum á dag).
Mest viðskipti í mánuðinum voru með bréf Arion banka (ARION), 13,3 milljarðar, Marel (MAREL), 13,2 milljarðar, Íslandsbanka (ISB), 10,2 milljarðar, Icelandair Group (ICEAIR), 7,2 milljarðar og Alvotech (ALVO), 5,2 milljarðar.
Heildarfjöldi viðskipta með hlutabréf í mars voru 13.040 talsins eða 567 að jafnaði á dag. Það er 8,4 prósentaaukningfrá fyrri mánuði, en í febrúar voru viðskipti með hlutabréf 523 að jafnaði á dag. Milli ára lækkaði fjöldi viðskipta um 0,5 prósent (í mars 2022 voru viðskipti með hlutabréf 570 að jafnaði á dag).
Flest viðskipti í mánuðinum voru með bréf Arion banka (ARION), 1.574, Icelandair Group (ICEAIR), 1.310, Alvotech (ALVO), 1.174, Íslandsbanka (ISB), 1.147 og Marel (MAREL), 1.144.
Á Aðalmarkaði var Arion banki með mestu hlutdeildina, 22,5 prósent, Kvika banki með 19,1 próset og þar á eftir kom Fossar fjárfestingarbanki með 17 prósent.
Í lok mars voru hlutabréf 30 félaga skráð á Aðalmarkað og Nasdaq First North á Íslandi. Nam heildarmarkaðsvirði skráðra félaga 2.659 milljörðum króna í lok mánaðarins (samanborið við 2.758 milljarða í lok febrúar).
Skuldabréf:
Heildarviðskipti með skuldabréf námu 258,2 milljörðum í mars sem samsvarar 11,2 milljarða veltu á dag. Það er 32 prósenta hækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í febrúar námu 8,5 milljörðum á dag) og 92 prósenta hækkun frá fyrra ári (viðskipti í mars 2022 námu 5,8 milljörðum á dag).
Alls námu viðskipti með ríkisbréf 211,5 milljörðum og viðskipti með bankabréf 35,4 milljörðum. Mest viðskipti voru með RIKB 28 1115 (38,2 milljarðar), RIKB 31 0124 (35,9 milljarðar), RIKB 42 0217 (27 milljarðar), RIKS 26 0216 (25,6 milljarðar) og RIKB 26 1015 (20 milljarðar).
Á skuldabréfamarkaði var Kvika banki með mestu hlutdeildina, 23,3 prósent, Fossar fjárfestingarbanki með 19,7 prósent og Arion banki þar á eftir með 18,4 prósent.
Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 2,4 prósent í mars og stendur nú í 1.683 stigum. Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) hækkaði um 3,9 prósnet og sú verðtryggða (NOMXIREAL) um 0,8 prósent.