Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs, var gestur í morgunþættinum Íslands vaknar á föstudaginn í tilefni af því að Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur víða um land um helgina.
Aríel fór ungur á sjó en hann „asnaðist“ óvart úr Menntaskólanum í Reykjavík í sjómennsku rétt fyrir hrun þegar allir „áttu“ að fara í grafíska hönnun, verkfræði eða viðskiptafræði.
Ég asnaðist á sjóinn milli bekkja, 17-18 ára gamall, og prófaði að stíga ölduna í fyrsta sinn. Kynntist þessari mögnuðu tilfinningu sem sjómenn eiga við höfuðskepnurnar. Að vera ekki í guðsgrænni heldur guðsblárri náttúrunni. Og það varð bara ekkert aftur snúið,“ segir Aríel í þættinum.
„Vinir mínir uppnefna mig alltaf „college dropoutið“ sem fór í [danska] herinn „note bene“,“ sagði hann og lýsti því hvernig hann skipti yfir í Stýrimannaskólann eftir að hann hætti í MR og vann á togurum hér heima. Árið 2017 fór eiginkona hans, Hrefna Marín Sigurðardóttir, í framhaldsnám í Danmörku og þá ákvað Aríel að „skella sér“ í Sjóðliðsforingjaskólann í danska sjóhernum.
„Þannig að ég er vissulega „college dropout“ sem fór í herinn,“ segir Aríel í viðtalinu. Hann sagðist þó hafa upplifað það að Danir litu svolítið á Íslendinga eins og „súkkulaði í snúsnú“.
„Það er ennþá litið á okkur sem part af þeirra slekti. Það eru alveg skýrar reglur um að útlendingar megi ekki gerast sérsveitarhermenn. Þú verður að vera fæddur í Danmörku. Nema einhvern tímann var ég á æfingu með sérsveit sjóhersins, Froskmönnunum,“ sagði Aríel og lýsti síðan samtalinu sem hann átti við sérsveitina.
„Svo í lok æfingarinnar segja þeir: -Heyrðu Aríel. Svo þegar þú klárar skólann þá kemurðu yfir til okkar.
-En strákar ég er ekkert fæddur í Danmörku.
-Ah, það er nú svo stutt síðan þið voruð hjá okkur. Hvað er þetta 1944? Er ekki pabbi þinn fæddur fyrir það?“ lýsti Aríel.
Hægt er að horfa á viðtalið við Aríel hér.