Margir eru á þeirri skoðun að Ísland hefði átt raunhæfan möguleika á að sigra Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, ef keppninni hefði ekki verið aflýst í dag.
„Árið sem við hefðum unnið Eurovision. Og það sem meira er: Við erum nýbúin að borga með bros á vör 700 þúsund krónur í einhverja bjánasekt til að fá að vera með, vegna þess að hinir fínu Hataripiltar drógu upp einhvern borða,“ segir Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður í færslu á Facebook og vitnar í hálfrar mánaða gamlan spádóm sinn og atvikið þar meðlimir Hatara drógu upp fána Palestínu.
Segir hann þetta staðfesta grun sinn um að söngvakeppnin yfirskyn fyrir „einhverja Júrómafíu til að væna og dæna og skemmta sér“ fremur en sjónvarpsviðburðinn. „Það virðist inntakið því mér er fyrirmunað að skilja af hverju veiran ætti að koma í veg fyrir sjónvarpsútsendingar.“
Stefán Jón Hafstein, fyrrverandi borgarfulltrúi og fjölmiðlamaður, tekur undir þetta sjónarmið og segir: „Það liggur við að ég fyrirverði mig fyrir að hafa skoðun á þessu júródæmi svo ruglað sem það er. En að þetta fólk geti ekki haldið sjónvarpskeppni án skrækjandi áhrofenda í sal er svo kexruglað að maður spyr sig um...og hér sleppi ég nokkrum orðum. Hafa þau ekki heyrt um LJÓSVAKA? INTERNET? SÍMKOSNINGU? Í hvaða miðaladakastala er þett fólk í vinnu?“
Mörður Árnason, sem á sæti í stjórn RÚV, segir að Ísland ætti að fá sektina endurgreidda: „Það minnsta sem Júróelítan getur gert er að skammast til að endurgreiða okkur 700 þúsund-kallinn !!!“
Davíð Þór Jónsson, prestur og fyrrverandi fjölmiðlamaður, bætir um betur og segir: „Við eigum að borga 1,4 milljónir með bros á vör og hafa með því keypt okkur leyfi til að gera þetta aftur.“