Ár síðan Anna flutti til Tenerife: „Ekkert á leiðinni til Ís­lands á næstunni“

Anna Kristjáns­dóttir fagnar því í dag að eitt ár er liðið síðan hún flutti í sólina til Tenerife. Anna virðist alls ekki sjá eftir því að hafa flutt til Para­dísar, eins og hún kallar þessa stærstu og fjöl­mennustu eyju Kanarí­eyja.

„Í kvöld verður komið eitt ár síðan ég kom til Para­dísar. Eins og gefur að skilja hefi ég verið mjög um­hverfis­væn þetta ár,“ segir hún í færslu á Face­book og nefnir að hún hafi á þessum tíma ekki stigið upp í þotu, ekki átt bíl næstum jafn­lengi en notið sólar og sumars allan þennan tíma.

Anna er komin með græna kortið sem gefur henni rétt til varan­legrar bú­setu og það virðist ekkert farar­snið vera á Önnu, síður en svo.

„Eins og gefur að skilja á orðum mínum er ég ekkert á leiðinni til Ís­lands á næstunni, enda lifi ég eins og blóm í eggi,“ segir hún en Anna skrifar dag­lega pistla á Face­book um lífið á Tenerife sem þykja býsna skemmti­legir af­lestrar.