Ár síðan að Tanja benti á þetta - Í kjölfarið var henni hótað öllu illu

Tanja Ísafjörð Magnúsdóttir, meðlimur Öfga, óskar landsmönnum gleðilegs sjómannadags í færslu á Twitter, en þar minnist hún á atvik sem hún lenti í fyrir ári síðan.

Síðasta sjómannadag benti Tanja skipuleggjendum Sjómannadags-helgarinnar á Ólafsfirði á að verulega hallaði á konur í dagskrá þeirra þar sem ekki ein einasta kona var nafngreind í dagskránni. Auk þess fannst henni veru-lega kynjað mál notað í auglýsingu um viðburðinn.

Í kjölfarið gerðist svolítið sem Tanja bjóst ekki við. Við þessari vinalegu ábendingu fékk hún svar frá skipuleggjendunum, ení samtali við Fréttablaðið á sínum tíma sagði hún: „Ég fékk mjög höstuglegt svar, uppfullt af út úr-snúningum, þar sem spurt var hvort ég væri að ásaka skipuleggjendur um ofbeldi.“

Í kjölfarið fékk hún hótun um að hún yrði kærð vegna málsins.

Ekki nóg með það. Tanja segir í færslu sinni í dag að henni hafi verið hótað öllu illu vegna málsins.

„Gleðilegan sjómannadag! Ekki nema ár síðan mér var hótað kæru.. fékk líka athugasemdir um að heil áhöfn ætti að nauðga mér, gaurar mættu í dm og buðu mér pláss á togara eða hótuðu mér einhverjum viðbjóði og fleira skemmtilegt! Vonandi var kynjahlutfall til fyrirmyndar í dag,“