Apple fyrsta trilljón dollara fyrirtækið

Apple náði í dag þeim áfanga að verða fyrsta fyrirtækið á hlutabréfamarkaði í Bandaríkjunum sem metið er á trilljón dali. Trilljón er milljón milljónir - $1.000.000.000.000 nánar tiltekið.

Apple var stofnað árið 1976 í þeim tilgangi að framleiða tölvur til einkanota, en á þeim tíma voru tövur fyrirferðamikil gálkn sem einkum voru í eigu stórfyrirtækja og ætluð til sérhæfðrar vinnslu. 

New York Times rekur í fróðlegri grein hvernig Apple hefur á tveimur áratugum tekist að snúa við rekstri sem flestir töldu vonlausan í það sem nú er stærsta fyrirtækið á bandarískum hlutabréfamarkaði og auðfúsugestur á flestum heimilum hins vestræna heims.