Anton Helgi gagn­rýnir af­steypu getnaðar­lims Hendrix

„Nú berast fréttir af því að safn í Reykja­vík ætli að sýna meinta af­steypu af getnaðar­lim Jimi Hendrix í sér­smíðuðum gler­kassa. Þetta finnst mér ó­skiljan­legur gjörningur,“ skrifar Anton Helgi Jóns­son, skáld, á Face­book síðu sína.

Frétta­blaðið greindi frá því í gær að af­steypa af getnaðar­limi rokkarans Jimi Hendrix hafi verið af­hjúpuð á Hinu ís­lenzka reða­safni í mið­bæ Reykja­víkur. Um er að ræða gjöf frá lista­konunni Cynt­hiu Al­britt­on en hún gerði af­steypuna árið 1968 en Hendrix lést tveimur árum síðar.

Antoni finnst minningu Hendrix lítill sómi sýndur með þessu. „Við fyrsta tæki­færi mun ég vekja upp í mér mið­bæjar­villinginn og gera mér ferð á safnið með góðan slag­hamar og mölva bæði gler­kassann og af­steypuna,“ skrifa hann.

Hann minnist þess að hafa heyrt fyrst í Hendrix í glym­skratta á Frí­kirkju­vegi 11 en þar stóð fé­lags­mið­stöð. „Það var ekki bara gítar­leikurinn sem heillaði, röddin var ein­stök og hún mun hljóma innra með mér svo lengri sem ég lifi,“ skrifar Anton.

„Ég hefði kannski skilið það betur ef eitt­hvert safn hefði viljað sýna af­steypur af höndum gítar­leikarans eða jafn­vel tönnum hans. Sam­kvæmt frétta­skýringa­þætti í út­varpi allra lands­manna á að sýna af­steypuna svo litlir karlar geti komið og öðlast sjálfs­traust við að bera sinn ska­ufa saman við sýningar­gripinn,“ skrifar Anton, ó­sáttur um þá van­virðingu sem Hendrix er sýnd að hans mati.