Ann­þór er breyttur maður: Útskrifast úr HR um áramótin

Ann­þór Kristján Karls­son er gestur í nýjasta hlað­varps­þætti Sölva Tryggva­sonar. Í við­talinu fara þeir Sölvi um víðan völl en Ann­þór er lík­lega best þekktur fyrir að hafa verið einn harð­svíraðasti glæpa­maður Ís­lands á árum áður. Ann­þór hefur snúið blaðinu við og er breyttur maður.

„Ég á mína for­sögu og það er full­kom­lega eðli­legt að sam­fé­lagið taki mann ekki í sátt strax, jafn­vel þó að maður sé búinn að af­plána dóm. Ég er að fara að út­skrifast úr byggingar­fræði úr Há­skóla Reykja­víkur um ára­mótin og er búinn að vera réttu megin við lögin í tals­verðan tíma, en ég skil það vel að það séu ekki allir til­búnir að taka mann í sátt,“ segir Ann­þór meðal annars.

Hann segir að heilt yfir hafi fólk tekið honum vel og hugsi al­mennt að batnandi fólki sé best að lifa.

„En ég er búinn að gera allt of mikið af mér til að geta bætt upp fyrir það allt. Svo virkar þetta líka þannig að minni manns verður val­frjálst þegar maður er í svona miklu rugli og ég man ekki nema hluta af því sem ég hef gert. En ég hef brotið á gríðar­lega mörgum og veit að í mörgum til­vikum dugar ekki að biðjast af­sökunar. En ég vona að það sem ég er að gera í dag muni smátt og smátt með tímanum gera það að verkum að ég verði þekktur fyrir annað en bara glæpi.”