Annað andlát vegna COVID-19 á tveimur dögum

Sjúklingur á sextugsaldri lést á Landspítalanum í gær, 26. Ágúst, vegna COVID-19. Þetta kemur fram í tilkynningu frá spítalanum í morgun.

Þetta er annað andlátið á aðeins tveimur dögum en karlmaður á áttræðisaldri lést á Landspítalanum á miðvikudag. Sjúkdómurinn hefur nú dregið 32 einstaklinga til dauða frá því að hann kom til Íslands í lok febrúar 2020.