Anna vill bjóða Ás­geiri í bjór á Tene ef hann gerir eitt fyrir hana: „Þeir mega alveg vera tveir og jafn­vel þrír ef hann lofar“

Anna Kristjáns­dóttir, íbúi á Tenerife, segir í pistli dagsins að það sé leiðin­legt að Ás­geir Jóns­son seðla­banka­stjóri sé einn fárra Ís­lendinga sem hefur ekki komið til Tenerife. *

„Ég fer að sakna þess að sjá ekki Ás­­geir seð­ló hérna. Hann er einn ör­fárra Ís­­lendinga sem aldrei hefur komið til Tene og löngu kominn tími til að hann mæti og fái sér einn bjór á Önnu­bar. Þeir mega alveg vera tveir og jafn­vel þrír ef hann lofar mér því að hækka stýri­vextina svo ég fái meiri vexti af sparnaðinum mínum. Alltaf sama eigin­girnin,“ skrifar Anna í pistli dagsins.

„ Annars ætti ég að segja sem minnst, enda kom ég ekki hingað í fyrsta sinn fyrr en ég var 66 ára og átti þá minna en ár eftir af virku starfi á vinnu­­markaði. Það var reyndar sama ár sem ég kom í fyrsta sinn á ævinni til Spánar, en til Portúgal hefi ég aldrei komið, enda hélt ég mig við kulda og vos­búð á Norður-At­lants­hafi hálfa starfs­­ævina,“ heldur Anna á­fram.

Hún segir hitann á Tene ekkert til að hrópa húrra yfir þessa stundina: , Rétt marði tuttugu gráðurnar og síð­buxur og flís­peysa urðu klæðnaður kvöldsins eins og svo oft áður undan­farnar vikur. Mér sýnist samt á spánni sem að hitinn fari ör­lítið hækkandi á sunnu­­dag og er það að vonum. Ég er búin að fá leið á þessum kulda.“