Anna Kristjánsdóttir, pistlahöfundur og Tenerife-búi, segist vera búin að gera upp hug sinn fyrir komandi forsetakosningar í vor.
Eins og staðan er núna virðist baráttan standa á milli fimm einstaklinga: Guðna Th. Jóhannessonar, Axels Péturs Axelssonar, Arngríms Friðriks Pálmasonar, Guðmundar Frankíns Jónssonar og Kristjáns Arnar Elíassonar.
Anna, sem er þekkt fyrir skemmtileg skrif á Facebook, sagði frá því um helgina að henni hafi borist nokkur skilaboð að undanförnu þar sem reynt er að hæðast að persónu forseta Íslands og niðurlægja hann á annan hátt.
„Vegna þessa lýsi ég því yfir að ég styð Guðna Th. Jóhannesson til áframhaldandi starfa sem forseti Íslands og er sú ákvörðun endanleg,“ segir Anna sem sendir þeim tóninn sem hafa athugasemdir við þetta eða ætla að halda áfram að senda henni neikvæð skilaboð í garð Guðna. Gefur hún leiðbeiningar hvernig fólk getur endað vinskapinn á Facebook.
„Með því að smella á þann möguleika losnið þið við mig. Þið getið svo bætt um betur með því að velja Settings (stillingar) og Blocking (Útilokanir) og þar losnið þið endanlega við bullið í mér. En ég elska ykkur samt. Svo er bara að vona að ræðismaður komi hingað til Tenerife svo hægt sé að greiða atkvæði utankjörstaðar í tæka tíð fyrir forsetakosningarnar 27. júní 2020.“