Anna varð fyrir barðinu á svikamyllu: Norskur vinur var úlfur í sauðargæru

Anna Kristjánsdóttir, íbúi á Tenerife, lenti í svikamyllu á dögunum. Frá þessu greinir hún í færslu á Facebook-síðu sinni, en hún segir að „norskur vinur sinn“ hafi komist yfir debetkortaupplýsingarnar sínar.

„Fyrir nokkru lenti ég í svikamyllu. Svikahrappur sem ég hélt að væri norskur vinur minn tókst með einhverjum furðulegum hætti að komast yfir debetkortaupplýsingarnar mínar og reyndi að tæma einn af íslensku bankareikningunum mínum.“

Þetta skrifar Anna sem segist hafa fært alla inneginina sína á sparireikning, en þrátt fyrir það tapaði hún um það bil 25 þúsund krónum. Þær fóru á tyrkneskan bankareikning.

„Þegar ég sá hvað var að gerast færði ég alla inneignina af hlaupareikningnum mínum yfir á sparireikning og í framhaldinu lét ég læsa debetkortinu mínu hjá Landsbankanum. En samt, ég tapaði um 25 þúsund krónum af þeim reikning inn á einhvern tyrkneskan bankareikning í mörgum örsmáum færslum.“

Sem betur fer fékk Anna peninginn sinn aftur eftir að hún sendi kvörtun á Salt-pay. Hún segir allt þetta hafa kennt sér mikilvæga lífsreynslu.

„Ég sendi inn kvörtun og í fyrradag var öll upphæðin endurgreidd. Takk Salt-pay. Þetta kenndi mér mikilvæga lexíu um að beita ítrustu varúð við öll möguleg tækifæri.

Vitið hjá konu á lífeyrisaldri er víst ekki meira en Guð gaf.“