Anna Kristjánsdóttir, íbúi á Tenerife, hefur tvær ástæður til að fagna í dag. Annars vegar á elsta dóttir hennar afmæli en svo er það annað afmæli sem tengist Önnu prívat og persónulega.
„Það er annað stórafmæli sem mig langar til að fjalla um hér sem er mér mjög mikilvægt því án þess væri ég ekki lifandi í dag. Í dag eru nefnilega liðin 20 ár síðan ég hætti að reykja, en ég valdi þennan dag til að hætta í tilefni þess að dóttir mín á afmæli í dag,“ segir Anna í pistli á Facebook-síðu sinni en pistill hennar hefur vakið talsverða athygli.
Í pistlinum segir hún að það hafi verið í júní árið 2000 sem hún ákvað að hætta. „Ég hafði fundið fyrir léttum þyngslum fyrir brjósti og óttaðist að þetta væri byrjun á lungnaþembu, enda hafði ég verið stórreykingamanneskja í 30 ár.“
Anna hafði komist að því að frænka hennar væri illa haldin af lungnaþembu og varð það til þess að hún ákvað að hætta. Anna fer svo yfir það hvernig hún hætti að reykja. Hún hafði heyrt að besta leiðin væri að ákveða að hætta væri með nokkrum fyrirvara. Fór svo að hún ákvað að hætta þann 6. ágúst klukkan 12 á hádegi.
„Svo rann upp örlagadagurinn. Ég var í fríi frá vinnunni, var ekki líka þjóðhátíð? Þegar kom að hádegi átti ég enn hálfan pakka af sígarettum og ekki gat ég hætt að reykja með öll þessi verðmæti í höndunum. Næstu þrjá tímana keðjureykti ég og klukkan 15:00 kláraði ég úr pakkanum, drap í og hefi síðan ekki reykt. Um leið og ég hafði slökkt í síðustu sígarettunni skellti ég á mig tveimur sterkum nikótínplástrum og byrjaði að nota nikótíntyggjó eins og enginn væri morgundagurinn.“
Anna segir að næstu mánuðir hafi gengið með erfiðismunum, en gengið samt án þess að hún félli.
„Ég smáminnkaði hjálparefnin, hætti með plásturinn eftir þrjá mánuði og fór úr 4 mg tyggjói í 2 mg um áramót og gafst svo upp á jórtrinu um mánuði síðar, eða sex mánuðum eftir að ég hætti að reykja.“
Anna segir svo frá því að þegar hún hætti að reykja hafi hún ákveðið að prófa eina sígarettu að ári liðnu eftir að hún hætti. „Þegar liðið var ár treysti ég ekki sjálfri mér til að reykja þessa sígarettu. Ég fann að fyrsta sígarettan væri fall. Ég var ekki reiðubúin að falla fyrir sígarettunni. Nú eru liðin 20 ár og ég treysti mér ekki enn til að prófa eina sígarettu. Ég viðurkenni að ég var og er nikótínisti, fíkill á því sviði og játa vanmátt minn.“
Anna segir að lungun hafi aldrei jafnað sig að fullu eftir reykingarnar þó þau séu vitanlega betri núna en þau voru þegar hún hætti. „En ég játa að þau hafa aldrei jafnað sig að fullu. Ég á enn erfitt með að ganga á fjöll, en ég reyni mitt besta.“
Anna endar svo pistilinn á þeim orðum að frænka hennar hafi dáið úr lungnaþembu í febrúar árið 2006. „Megi örlög hennar verða okkur hinum hvatning til að hætta að reykja,“ segir hún að lokum.