Anna Þóra horfði á verslunina sína springa og fékk hjartaáfall – „Ég hélt að hún væri bara að djóka“

„Ég hringdi upp á Landspítala og sagði þeim að ég væri að verða fyrir rosalegu tjóni. Þá var ég með hjartaáfall sem heitir broken heart syndrome,“ segir Anna Þóra Björnsdóttir sem rekur verslunina Sjáðu ásamt eiginmanni sínum, Gylfa Björnssyni.

Anna Þóra er í viðtali í Fréttablaðinu í dag en segja má að aðfaranótt 20. október 2002 renni henni seint úr minni. Það kvöld varð eldsvoði í versluninni sem eyðilagðist í kjölfarið. Áfallið sem fylgdi tjóninu var mikið því Anna Þóra fékk hjartaáfall sem kallast broddþensluheilkenni (e. broken heart syndrome).

Anna Þóra segir að konan sem var með búðina við hliðina á þeirra hafi hringt í hana þetta laugardagskvöld fyrir 20 árum og spurt: Ertu búin að frétta þetta? Það er að brenna niður frá.“

Í ljós kom að upptök brunans voru í porti við hlið verslunarinnar. „Ég hélt að hún væri bara að djóka. Það skrýtnasta er að við vorum með lykla að nýju plássi og vorum bara að fara að flytja búðina. Ég hafði lækkað tryggingarnar verulega þannig að við vorum mjög illa tryggð,“ segir hún í Fréttablaðinu.

Hinn landsþekkti Lalli Johns gekkst við brunanum, að sögn Önnu Þóru, og bað hann hjónin afsökunar. „Hann viðurkenndi það fyrir okkur,“ segir hún og bætir við að það hafi aldrei verið ætlun Lalla að valda stórbruna heldur stríða íbúa sem bjó á staðnum.

Anna Þóra segir að þegar þau hjónin komu á vettvang hafi eldurinn ekki verið búinn að læsa sig í versluninni þeirra. Vildu þau fara inn til að hreinsa lagerinn og fjarlægja súrefniskút sem þau vissu að myndi springa ef eldurinn kæmist inn. „En það var aldrei hlustað á okkur,“ segir hún meðal annars.

„Okkur fannst svo óhuggulegt að vita af kútnum og vorum að reyna að segja þeim það. Við sögðum: Takið alla vega lykilinn svo að þið getið farið inn og náð í þetta. Svo vorum við beðin að færa okkur fyrir lásasmið sem átti að pikka upp lásinn að Sjáðu. Við stóðum alltaf þarna með lykilinn. Svo nær ekki lásasmiðurinn inn og við sjáum bara húsið springa.“

Anna segist hafa fengið áfall eftir tjónið og að lokum hafi hún greinst með broken heart syndrome. Þrátt fyrir áfallið lögðu þau hjónin ekki árar í bát og hafa þau byggt verslunina upp aftur með glæsibrag.

Alla umfjöllunina má lesa á vef Fréttablaðsins.