Anna telur vegan-mataræði hafa haft skaðleg áhrif á sig

Anna Lind Fells, functional medicine heilsuþjálfi, einkaþjálfari og jógakennari, telur að vegan-mataræði hafi haft skaðleg áhrig á alla hennar líkamsstarfsemi. Anna Lind er í áhugaverðu viðtali í Fréttablaðinu í dag í tilefni af útgáfu nýrrar bókar, Er vegan mataræði heilbrigt fyrir Íslendinga?

Í viðtalinu kemur fram að Anna Lind hafi verið vegan í sex ár og haldið lífsstílnum til streitu þrátt fyrir ýmis merki um að hann gerði henni ekki gott. Svo fór að hún sneri við blaðinu og um þessa reynslu sína hefur hún skrifað bók.

Áður en Anna Lind gerðist vegan átti hráfæði hug hennar allan en þegar hún byrjaði á vegan-mataræði varð hún sannfærð um að það væri það eina rétta fyrir hana. Anna Lind lagði stund á nám sem kallast „functional medicine“ og kemur sú hugmyndafræði við sögu í bókinni.

„Ég er búin að læra ótrúlega margt í þessu námi og eins og ég kem inn á í bókinni þá lærði ég í gegnum „functional medicine“ að hlusta á hvað minn líkami þarf og hvað við erum öll mismunandi. Ég hef alls ekkert á móti vegan mataræði og er einfaldlega að deila því sem ég hef komist að á minni sex ára vegferð,“ segir hún í Fréttablaðinu og bætir við að algengt sé að einstaklingar byrji að upplifa ýmis heilsufarsvandamál eftir nokkur ár á vegan-mataræðinu.

„Og ég hef séð mikið um það í mínum viðtalstímum við viðskiptavini, meðal annars candida, SIBO, bakflæði, orkuleysi og hormónaójafnvægi. Ég fer í bókinni yfir það sem ég hef lært um vegan mataræði eftir öll þessi ár og þá aðallega út frá heilsufarslegu sjónarhorni en ég fer einnig yfir siðferðis- og umhverfissjónarmið. Vegan mataræði er mjög heitt umræðuefni þessa dagana og ég veit að rafbókin á eftir að vekja umræður.“

Viðtalið við Önnu Lind má nálgast í heild sinni í Fréttablaðinu í dag.