Anna Kristjánsdóttir, þekktasti Íslendingurinn sem er búsettur á Tenerife, hefur lúmskt gaman af því að velta fylgjendum sínum á Facebook upp úr góða veðrinu sem jafnan ríkir á eyjunni fögru.
Anna skrifar reglulega pistla frá Tenerife þar sem hún heldur þeim þúsundum Íslendinga sem fylgjast með henni upplýstum um lífið í sólinni.
Í pistli dagsins skrifar Anna um rafvirkja sem vann eitt sinn á bilanavakt Orkuveitunnar og átti það til að vera dálítið höstugur þegar hann ræddi við kúnna sem kvörtuðu. Anna kveðst muna vel eftir því að hann notaði orðbragðið „ég sagði þér það!“ óspart.
„Þegar farið var að segja upp fólki hjá Orkuveitunni í kreppunni var hann látinn fjúka, samt hinn ágætasti maður sem vildi öllum vel, en kannski ekki alveg með réttu orðin í þjónustulundinni,“ segir Anna sem bætir við að hún segi þessa sögu því oft ratist kjöftugum satt orð á munn.
„Þegar haft er í huga að ég var margoft búin að kvarta yfir fimbulkuldanum hér í Paradís gegn hörðustu mómælum þeirra sem lesa af apóteksmælum og trúa þeim eins og nýju neti, þá lýsti ég því yfir fyrir nokkru að sumarið kæmi þann 26 mars í von um fyrirgefningu þeirra sem trúa á apóteksmæla og akureyskar Selfossmælingar. Ég fékk engin boð um fyrirgefningu synda minna, en þó stóð ég við orð mín.“
Anna segir að sumarið hafi nefnilega komið þann 26. mars með sólskinsbros á vör. Nefnir hún að í gær hafi hitinn farið í 29 gráður samkvæmt veðurstofumælingum.
„Ofan á allt saman er spáð 31°C hita í dag og 33°C á morgun. Loksins, loksins, segi ég bara og smæla framan í heiminn. Máli mínu til sönnunar birti ég mynd úr símanum mínum og nú er bara að vona að spáin rætist því ég elska góðan yl,“ segir Anna meðal annars.