Anna Sigrún svarar fýlupúkunum sem gerðu lítið úr óveðrinu í fyrradag

Anna Sigrún Baldursdóttir, framkvæmdastjóri skrifstofu forstjóra Landspítala og bakaþankahöfundur Fréttablaðsins, skýtur á þá sem gagnrýndu almannavarnir fyrir að gera helst til mikið úr óveðrinu sem gekk yfir landið í fyrradag.

Mjög var varað við yfirvofandi óveðri með rauðri viðvörun en þegar á hólminn var komið var veðrið ekkert svo slæmt. Gagnrýndu sumir almannavarnir fyrir að hrópa úlfur, úlfur.

Anna Sigrún segir í bakþönkum Fréttablaðsins í dag að síðustu misseri hafi reynst mörgum erfið.

„Einkum og sér í lagi þeim sem eiga erfitt með að „láta hafa vit fyrir sér“ með boðum og bönnum sem varða þá ekki persónulega heldur einkum almannahagsmuni. Þetta kemur auðvitað engum á óvart sem þekkir íslensku þjóðina eða hefur dvalið hér á landi lengur en í korter.“

Anna Sigrún segir að hér vitum við almennt allt best og höfum líka meinta reynsluþekkingu sem einhverjir sérfræðingar eiga ekkert í, ef sá gállinn er á okkur.

„Það hefur því komið mér ánægjulega á óvart hversu fólk var tilbúið til að fylgja leiðbeiningum sérfræðinga og stjórnvalda hvað sóttvarnir varðar,“ segir hún og heldur áfram:

„Líklega er það vegna þess að orðið „farsótt“ var flestum framandi og almennt hræðumst við hið óþekkta. En einmitt þess vegna hefur takmörkuð þolinmæði fyrir leiðbeiningum sömu yfirvalda vegna óveðurs ekki komið á óvart. Þar er nú aldeilis hver einasti Íslendingur sannfærður um að hann sé á heimavelli. Enda hafa nánast allir einhvern tíma gengið með blauta lopavettlinga í skólann (ekkert skutl), setið fastir í bíl og/eða mokað sig út úr húsi í kafaldsbyl.“

Anna Sigrún bendir á að viðbrögð yfirvalda almannavarna, hvort sem um farsótt eða aðra vá ræðir, snúist ekki um að bregðast við þegar allt er farið í voða.

„Þau byggja ekki á hinu landsþekkta mottói Íslendinga, „þetta reddast“. Þau snúast um að bregðast við í tíma og hindra alvarlegar afleiðingar yfirvofandi hættuástands. Í raun ættu Almannavarnir að heita Forvarnir. Mælikvarði þeirra á árangur aðgerða ætti svo líklega að vera fjöldi Facebook-fýlupósta og Twitter-fýlufærslna um að þessi viðbrögð hafi nú verið óþarfi.“