Anna Sig­rún segir aftur­för í réttinda­bar­áttu hin­segin fólks á Ís­landi: „Við erum dá­lítið sjálf­um­­glöð í meintu um­­burðar­­lyndi“

Anna Sig­rún Baldurs­dóttir, fram­­kvæmda­­stjóra skrif­­stofu for­­stjóra Land­­spít­ala, hvetur fólk til halda á­fram að berjast fyrir réttindum hin­segin fólks á Ís­landi.

„Vissu­­lega má oft satt kyrrt liggja en það er ljótt að ljúga. Það kann sjaldnast góðri lukku að stýra, en lífið er nú ekki ein­falt,“ skrifar Anna í bak­þönkum Frétta­blaðsins.

„Í vikunni varð virðu­­legur em­bættis­­maður upp­­vís að því að full­yrða um að til­­­tekinn hópur stundaði lygar sér til fram­­dráttar, raunar lífs. Full­yrt var að fólk hefði logið sér til griða, enda um­­hverfi hælis­­leit­enda á Ís­landi furðu­­lega harð­neskju­­legt og raunar bara asna­­legt, ef maður splæsir hálfri hugsun í málið. Nú getur maður í sjálfu sér ekki sagt að em­bættis­­maðurinn hafi logið til um lygarnar en í öllu falli voru um­­­mæli hans ó­­­boð­­leg og ó­­­sæmandi,“ bætir hún við.

„Það er engin á­­stæða til að þakka manninum ó­­­sómann, en þó má segja að um­­­mælin dragi at­hyglina að þeirri aftur­­­för sem virðist vera að verða í réttinda­bar­áttu hin­­segin fólks. Ég hef á­hyggjur af sam­­fé­laginu okkar, sér­­stak­­lega þeim okkar sem ekki lifum veru­­leika þeirra sem eru hin­­segin og klöppum okkur sjálfum á bakið fyrir að kaupa regn­­boga­fána einu sinni á ári í Gleði­­göngunni. Við erum dá­lítið sjálf­um­­glöð í meintu um­­burðar­­lyndi, finnst við jafn­vel dá­lítið hafa skilað okkar inn í bar­áttuna og að björninn sé unninn. Nú geti þessi hin­­segin bara við­haldið árangrinum sem náðst hefur.“

„En þannig er þetta ekki. Það skiptir ekki máli hvort hópurinn er hin­­segin, hafi ekki hvítan húð­lit sé fatlaður eða allt í senn – bar­áttunni lýkur aldrei og við öll verðum að taka þátt til að við­halda opnu, fjöl­breyttu og skemmti­­legu sam­­fé­lagi þar sem við öll getum notið okkar. Þannig að já, mætum í Gleði­­gönguna, kaupum fánann, en um­­­fram allt – berjumst,“ skrifar Anna að lokum.