Anna sendir ís­lensku björgunar­sveitar­fólki í Tyrk­landi stuðning: „Þetta fólk á skilið fálka­orðu fyrir ó­­­sér­­hlífni sína“

Anna Kristjáns­dóttir, íbúi á Tenerife, er líkt og aðrir hreyfð eftir jarð­skjálftann í Tyrk­landi en þúsundir létu lífið í jarð­skjálftunum borg­inni Gazian­tep í suð­aust­ur­hluta Tyrk­lands.

Ís­lenskt björgunar­sveitar­fólk flaug út til Tyrk­lands í gær­kvöldi til að að­stoða við leit og björgun og segir Anna við Ís­lendingar megum vera stolt af þeim og sendir þeim stuðnings­kveðjur.

„Flug ICE1041, TF-ICP lagði af stað frá Kefla­­vík til Gazian­tep í Tyrk­landi klukkan 21.05 í gær­­kvöldi og væntan­­leg þangað í morguns­árið með hóp björgunar­sveitar­­fólks og má hópurinn eiga alla mína hvatningu og stuðning í hrika­­lega erfiðu verk­efni á jarð­­skjálfta­­svæði. Þau eiga alla mína að­dáun í erfiðu verk­efni í sjálf­­boða­vinnu. Þau eru að leggja á sig mikla vinnu fyrir ekki neitt nema vonandi þakk­læti. Þetta fólk á skilið fálka­orðu fyrir ó­­­sér­­hlífni sína,“ skrifar Anna.

Anna Kristjánsdóttir.