Anna ósátt: „Auðvitað finnst manni þetta pínu fúlt“

Anna María Sigvaldadóttir, íbúi í Grímsey, segir að óánægju gæti meðal íbúa í Grímsey vegna fyrirkomulags bólusetninga gegn kórónuveirunni.

Íbúar þurfa að gera sér að góðu að ferðast til Akureyrar til að fá sprautu og þurfa þeir að borga allan ferðakostnað úr eigin vasa. Þá er ótalið tekjutap þar sem fólk í vinnu þarf að taka sér frí til að komast.

Fjallað er um þetta í Morgunblaðinu í dag en í umfjölluninni furðar Anna sig á því að ekki sé hægt að standa með öðrum hætti að bólusetningum enda Grímsey ekki ýkja stór staður. Bólusetningar fyrir íbúa fara fram á Sjúkrahúsinu á Akureyri og segir Anna að íbúar þurfi að taka sér tveggja daga frí frá vinnu til að komast þangað.

„Auðvitað finnst manni þetta pínu fúlt,“ segir hún við Morgunblaðið. Anna hefur sjálf í nógu að snúast, hún er formaður kvenfélagsins, umboðsmaður Samskipta, sér uma afgreiðslu á pósti, í sundlaug og á tjaldstæðinu. Til að komast tímanlega til Akureyrar í bólusetningu þurfi fólk að fara deginum fyrr til Akureyrar.

Anna segir að réttast væri að læknir og hjúkrunarfræðingur kæmu til Grímseyjar til að bólusetja íbúa og kveðst hún myndu borga brúsann sjálf með glöðu geði.

„Þetta eru ekki nema 30 sprautur. Ég myndi sjálf borga fyrir hjúkrunarfræðing til að koma hingað tvisvar og sprauta okkur. En í staðinn þarf ég að leggja upp í ferðalag og fá einhvern til að leysa mig af á meðan.“