Anna Kristjánsdóttir, íbúi á Tenerife og einn skemmtilegasti pistlahöfundur landsins, skellti sér heim til Íslands í gær. Anna lét fara vel um sig á Saga Class eftir að hafa ákveðið nokkuð óvænt að skella sér heim á klakann.
Í pistli á Facebook-síðu sinni greinir hún þó frá óánægju sinni með eitt atriði á flugvellinum úti.
„Eitt var ég þó mjög ósátt við í tengslum við ferðina til Íslands í gær. Vegna mikillar umferðar um flugvöllinn á Tenerife sur, var örtröð á flugvellinum þar sem allir Skandinavarnir voru að fara heim eftir stutt jólafrí og flugvélar látnar fljúga í hringi á meðan beðið var lendingarleyfis og var talsverð seinkun á Icelandair vélinni þegar hún var látin hringsóla yfir sundinu á milli Tenerife og La Gomera.“
Anna segir að þegar vélin loksins lenti hafi henni verið komið fyrir fjarri öllum römpum og þurftu farþegarnir að fara á milli með flugvallarrútum.
„Svo kom að því að opnað var fyrir Íslendingana sem voru á leið til Íslands og öllum smalað inn í eina flugvallarrútu í miklum þrengslum og loftleysi í tuttugu mínútur til hálftíma áður en okkur var hleypt um borð í vélina. Er meiri möguleiki á að smitast af Cóvið en einmitt svona?“
Anna kveðst hafa kvartað við Icelandair í þeirri von að þeir komi kvörtunum til skila til Aena sem sér um rekstur flugvallarins á Tenerife og er sambærilegt við ISAVIA. „Þegar allt er á kafi í smitum er svona lagað engan veginn ásættanlegt.“