Anna Kristjánsdóttir, íbúi á Tenerife og einn þekktasti bloggari landsins, lofaði lesendum sínum fregnir af æsilegri heimför sinni til Spánar. Hún átti von að miklum vandræðum en svo var ekki.
„Því miður neyðist ég til að valda lesöndum mínum vonbrigðum. Ég hafði lofað ykkur æsilegum fréttum af heimför minni frá Spáni, en allt gekk snurðulaust fyrir sig. Ég mætti á flugvöllinn innan við tveimur tímum fyrir brottför, fór rakleiðis í gegnum eftirlitið og beið svo í hálftíma eftir vitneskju um hvaða hlið ætti að fara um út í vél, beið síðan í hálftíma við hliðið áður en opnað var út í vélina,“ skrifar Anna.
„Lestun flugvélarinnar gekk fljótt og vel fyrir sig, vélin komst hjálparlaust á loft og alla leið til Tenerife norte og lenti líka með ágætum aðeins á undan áætlun. Ég var með fyrstu farþegum út og beint út þar sem Pétur og Ásta biðu og óku mér síðan heim. Semsagt, allt með ágætum. Það var að sjálfsögðu hvergi beðið eftir töskum og engir voru grenjandi smákrakkarnir til að trufla flugsvefninn,“ skrifar Anna að lokum.
Anna birti pistill gærdagsins óvenju snemma þar sem hún var að leið í flug en hann má sjá hér að neðan.