Anna með skemmtilega sögu af íslensku pari á Tenerife

Anna Kristjánsdóttir, íbúi á Tenerife, segir skemmtilega sögu af íslensku pari á eyjunni fögru. Anna hefur haldið fylgjendum sínum á Facebook upplýstum um lífið á Tenerife og má segja að pistlarnir njóti mikilla vinsælda.

Í pistli sínum í morgun segir hún:

„Eina sögu verð ég samt að láta flakka. Íslensk kona, nýlega flutt til Paradísar fór til Puerto de la Cruz um daginn ásamt sambýlismanni sínum og þaðan upp að þjóðgarðinum á miðhálendinu. Á leiðinni upp fóru þau í gegnum eitthvert þorp þar sem þrír fánar héngu á stöngum við veitingahús,“ segir Anna.

Það er skemmst frá því að segja að fánarnir þrír voru spænski fáninn, Evrópusambandsfáninn og íslenski fáninn.

„Þau stoppuðu og konan reyndi að hefja samræður við veitingamanninn sem einungis gat svarað á spænsku. Sambýlismaðurinn tók þá við enda sæmilega talandi á spænska tungu og kom þá í ljós að veitingamaðurinn stóð í þeiri trú að þetta væri breski fáninn, Union Jack,“ segir Anna sem endar söguna stuttu en skemmtilegu á þessum orðum:

„Allavega taldi hann sig hafa pantað breskan fána, en fékk þann íslenska í staðinn. Megi hann flagga íslenska fánanum sem oftast og lengst.“