„Það má greinilega ekki gera neitt skemmtilegt af sér meðan á stofufangelsinu stendur,“ segir Anna Kristjánsdóttir sem búsett er á Tenerife um þessar mundir.
Anna hefur haldið úti dagbók á Facebook þar sem hún segir frá ævintýrum sínum á Tenerife, eða Paradís eins og hún kallar eyjuna fögru.
Eins og kunnugt er ríkir hálfgert útgöngubann á Spáni vegna COVID-19 faraldursins. Fólk má helst ekki fara út fyrir hússins dyr nema nauðsyn beri til. Anna segir að spænsk yfirvöld fylgi þessu eftir af fullum þunga eins og hún varð vitni að í gær.
„Ekkert má nú lengur. Í gærmorgun veitti ég því eftirtekt að einhverjir íbúar blokkarinnar sem ég bý í voru komnir í sólbað á sundlaugabakkanum og fjölgaði þeim eftir því sem hlýnaði þegar leið á morguninn. En Adam var ekki lengi í Paradís því í hádeginu mætti lögreglan og rak alla inn til sín,“ segir hún.
Anna bætir við í léttum dúr að lögreglan hafi ekki verið komin á svæðið vegna hneykslanlegrar framkomu hennar. „Því ég var ekki einu sinni komin niður.“
Anna nefnir svo fleiri sérkennileg dæmi sem hún hefur orðið vitni að og bendir á að Þjóðvarðliðið á Spáni aðstoði hverfislögregluna við að halda uppi lögum og reglu.
„Þeir stöðvuðu einn á gömlum Daihatsu Feroza beint fyrir framan blokkina mína og stóðu hæfilega langt frá honum til að tryggja að ekki bærist smit á milli og yfirheyrðu hann og slepptu síðan. Ég skal viðurkenna að ég hafði lúmskt gaman að aðförum lögregluþjónanna því báðir stóðu þeir í þriggja metra fjarlægð frá bílnum, einnig sá sem stóð farþegamegin en enginn farþegi var í bílnum svo hann var eiginlega fjóra metra frá ökumanninum,“ segir Anna.
Útgöngubannið á Spáni tók gildi á sunnudag og mun það gilda í að minnsta kosti 15 daga.