Anna Kristjánsdóttir íbúi á Tenerife greinir frá því að hún hafi unnið í Lottó í nýrri bloggfærslu á Facebook.
„Ég er ekki ein af þeim sem vinna mikið í Lottó, en þó á ég einn tíu raða seðil í áskrift sem var upphaflega keyptur með sjálfvali. Vissulega fæ ég þrjá rétta öðru hverju en svo fyrir fimm vikum síðan var ég með fjóra rétta og bónustölu að auki, en önnur röð á sama seðli gaf mér þrjá rétta. Ég slæ ekkert hendinni á móti nærri 150.000 krónum sem hoppa svona óvænt upp í hendurnar á mér og tók þessu fagnandi þótt ég líði ekki beinlínis skort en svo gerðist það skrýtna,“ skrifar Anna.
„Um síðustu helgi vann ég aftur á sama áskriftarmiðann. Í þetta sinn gaf röðin sem gaf þrjá rétta fyrir fimm vikum síðan, fjóra rétta plús bónustöluna, en röðin sem ég hafði áður unnið feitt á, gaf þrjá rétta. Ég tók einnig fagnandi á móti nýju upphæðinni sem var vissulega örlítið lægri, en ég mun örugglega gera mér eitthvað gott fyrir aurana sem eru þegar komnir inn á bankareikninginn minn,“ bætir hún við.
Hún segist samt enn bíða eftir stóra vinningnum í Eurojackpot sem hún ætlar að nota til að kaupa lúxushótelið handa við óræktina og breyta því í hunda- og kattahótel. „Starfsfólkið mun samanstanda af fátækum íslenskum öryrkjum og ellilífeyrisþegum sem vilja komast í þægilegt en vellaunað starf með fríu húsnæði á lúxushóteli við sólarströnd. Eins og allir vita eru peningar félagsverur og kunna best við sig í félagsskap með öðrum peningum,“ skrifar Anna.
„Annars var mánudagurinn óvenju rólegur. Ég fór með Mjallhvíti í dekurmeðferð um morguninn og svo mikið var stjanað við hana að hún var enn inni í nótt og ég fæ hana væntanlega í dag. Ég er viss um að hún muni mala eins og köttur þegar ég sæki hana á eftir. Ég lá því heima allan daginn með tærnar upp í loft og naut þess að gera ekki neitt. Sólin var í fýlu við mig svo ekki gat ég legið í sólbaði vegna sólarleysis, sem er bagalegt því Sigrún nágranni minn kom og færði mér uppáhaldssólarvörnina mína númer 15. Við sjáum til hvort mér takist ekki að hrista af mér slenið í dag og klára bókina hennar Auðar Haralds,“ skrifar Anna og birtir mynd af hótelinu.